Hrafn í úrslitum!

Hrafn Jökulsson, sem vakti mikla lukku á árshátíð lestrarfélagsins með krúnki sínu, er kominn í úrslit í samkeppni um bestu ljósmyndina úr göngum og réttum í Strandasýslu í haust.

Það vita krummar að hann er ekki einhamur!

Hér má kjósa í netkosningunni.

Annars er Hrafn í góðu yfirlæti í Trékyllisvíkinni við ysta haf. Þar endar vegurinn. Til hvers að leggja hann lengra?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Mættum við fá að sjá?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.3.2008 kl. 10:32

2 Smámynd: Krummi

Það er tengill þar sem stendur "hér" í textanum. Bara að smella á hann! Hrafn á mynd númer sex!

Krúnk!

Krummi, 27.3.2008 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband