Enn af kynlífsmyndböndum

Ekki er hægt að þverfóta á Netinu fyrir fréttum af kynlífsmyndböndum. Eina leiðin til að fá panda-birni til að fjölga sér er að sýna þeim myndbönd af slíku háttalagi, eins og fjallað hefur verið um hér á síðunni, og nú á að dreifa myndbandi með Jessicu Simpson. Það er ljóst hvað verður í jólapökkum til þeirra karlmanna sem hafa verið tregir til barneigna. Sólskríkjan syngur:

Konan sínum karli vongóð gefur

kynlífsmynd með stjörnum;

ef til vill það áhrif sömu hefur

og hjá panda-björnum!


mbl.is Jessica Simpson miður sín vegna sögusagna um kynlífsmyndband á Netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband